Fotbolti.net
31.08.11 - 21:40
Hafliði Breiðfjörð

Craig Bellamy til Liverpool (Staðfest)

Craig Bellamy klæðist búningi Liverpool að nýju.

Craig Bellamy klæðist búningi Liverpool að nýju.

Canon

Mynd: Getty Images

Craig Bellamy er genginn til liðs við Liverpool að nýju frá Manchester City en þetta var staðfest rétt um hálftíma fyrir lok enska félagaskiptagluggans. Hann mun klæðast treyju númer 39 hjá Liverool.
Bellamy kemur til félagsins frá Manchester City og gerir tveggja ára samning.

Hann hafði leikið með Cardiff City á láni á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 11 mörk í 35 leikjum.

Fyrr í dag hafði hann fengið að yfirgefa herbúðir welska landsliðsins til að fara í læknisskoðun hjá Liverpool og nú hefur hann gengið frá samningi við Liverpool.

Hann lék með Liverpool tímabilið 2006-2007 og skoraði þá sjö mörk í 27 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.