Fotbolti.net
31.08.11 - 21:54
Hafliði Breiðfjörð

Shaun Wright-Phillips til QPR (Staðfest)

Shaun Wright-Phillips til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Shaun Wright Phillips er genginn til liðs við QPR frá Manchester City en þetta var staðfest núna í kvöld.
Hann hefur verið neðarlega í goggunarröðinni hjá Manchester City sem er stjörnum prýtt lið og þegar hann spilaði á síðustu leiktíð kom hann í flestum tilfellum inná sem varamaður.

Hann kom til City að nýju frá Chelsea árið 2008 og hefur síðan spilað 64 leiki og skorað 9 mörk. Hann hafði hafið feril sinn hjá City árið 1998.

Félagaskiptaglugginn lokaði núna klukkan 22:00 að íslenskum tíma og Wright-Phillips rétt náði í gegn fyrir það.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.