31.08.11 - 22:20
Magnús Már Einarsson
Nicklas Bendtner til Sunderland (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sunderland hefur fengið Nicklas Bendtner framherja Arsenal á láni út tímabilið.
Bendtner hefur ekki átt fast sæti í liði Arsenal en hann mun fá tækifæri til að láta ljós sitt skína hjá Sunderland í vetur.
Þessi 23 ára gamli Dani var einnig á óskalista Stoke en á endanum náði Steve Bruce stjóri Sunderland að krækja í hann.
Bruce þekkir Bendtner síðan hann fékk leikmanninn til Birmingham á láni á sínum tíma.
Bruce hefur verið í leit að framherja undanfarnar vikur. Hann hafði meðal annars áhuga á Peter Crouch framherja Tottenham en hann er á leið til Stoke.

Heimild: Sky