31.08.11 - 22:25
Magnús Már Einarsson
Mikel Arteta til Arsenal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Arsenal hefur keypt miðjumanninn Mikel Arteta frá Everton en félagaskiptin gengu í gegn rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði klukkan 22:00.
Talið er að kaupverðið sé í kringum tíu milljónir punda en Arteta skrifaði sjálfur undir fjögurra ára samning.

Arteta var orðaður við Arsenal fyrr í dag en á tímabili leit út fyrir að ekkert yrði af samningum.
Arsene Wenger náði á endanum að kaupa leikmanninn og hann hefur alls keypt fimm leikmenn til Arsenal í vikunni.
Auk Arteta komu Yossi Benayonun, Andre Santos og Per Mertesacker til Arsenal í dag og í gær keypti félagið framherjann Chu Young Park.

Heimild: Sky