31.08.11 - 22:25
Hafliði Breiðfjörð
Raul Meireles til Chelsea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Chelsea náði að kaupa Raul Meireles frá Liverpool rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði í kvöld en kaupverðið er 12 milljónir punda og portúgalski miðjumaðurinn skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið.
Meireles hafði fyrr í kvöld óskað eftir sölu frá Liverpool og eftir það gerðust málin mjög hratt og Chelsea náði að ganga frá kaupunum svo Meireles spilar undir stjórn Andre Villas-Boas landa síns næstu fjögur árin.
Meireles kom til Liverpool frá Porto fyrir rúmu ári síðan og stóð sig vel á sínu fyrsta tímabili á Englandi.
Chelsea reyndi að krækja í Meireles fyrr í vikunni þegar félagið bauð átta milljónir punda og Yossi Benayoun í skiptum en Liverpool hafnaði því tilboði.
Meireles kannast við Andre-Villas Boas knattspyrnustjóra Chelsea en þeir unnu saman í stuttan tíma hjá Porto á sínum tíma.