Fotbolti.net
31.08.11 - 22:50
Magnús Már Einarsson

Royston Drenthe og Denis Stracqualursi til Everton (Staðfest)

Royston Drenthe.

Royston Drenthe.

Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur fengið Royston Drenthe og Denis Stracqualursi á láni út tímabilið.

Everton seldi fyrr í kvöld Mikel Arteta til Arsenal en David Moyes náði einnig að krækja í tvo leikmenn á láni áður en félagaskiptaglugginn lokaði.
Drenthe, sem er 24 ára vinstri kantmaður, hefur verið á mála hjá Real Madrid frá því árið 2007.

Þessi eldfljóti Hollendingur hefur hins vegar ekki átt fast sæti í liðinu og á síðasta tímabili var hann í láni hjá Hercules.

Hinn 23 ára gamli Stracqualursi kemur á láni frá Tigres í Argentínu en hann er framherji.

Stracqualursi mun fylla skarð Yakubu sem gekk til liðs við Blackburn Rovers rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði.

Heimild: Heimasíða Everton

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.