Fotbolti.net
31.08.11 - 22:55
Hafliði Breiðfjörð

Cameron Jerome í Stoke (Staðfest)

Cameron Jerome er orðinn leikmaður Stoke City.

Cameron Jerome er orðinn leikmaður Stoke City.

Canon

Mynd: Getty Images

Tony Pulis knattspyrnustjóri Stoke City tókst það sem hann ætlaði sér áður en félagaskiptaglugginn lokaði á Englandi klukkan 22:00 því hann náði að landa sóknarmönnunum Cameron Jerome.
Cameron Jerome kom til félagsins frá Birmingham. Kaupverð leikmannsins ver fimm milljónir punda og leikmaðurinn skrifaði undir fjögurra ára samning við Stoke City.

Pulis gerði það eina rétta með kaupunum á Jerome því þessi skæði sóknarmaður skoraði sex mörk í fjórum leikjum sínum á Brittania leikvangi Stoke þegar hann kom þangað með fyrra liði sínu.

Jerome er 25 ára gamall framherji sem hóf feril sinn hjá Cardiff City eftir að hafa farið í gegnum unglingastarf Middlesbrough.

Hann spilaði lykilhlutverk í Birmingham þegar það vann sér sæti í ensku úrvalsdelidinni 2006-2007 tímabilið en eftir að liðið féll úr deildinni að nýju er hann nú farinn til Stoke.

Heimild: Vefur Stoke

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.