Fotbolti.net
31.08.11 - 22:59
Magnús Már Einarsson

Anton Ferdinand til QPR (Staðfest)

Anton Ferdinand til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Queens Park Rangers náði að ganga frá kaupum á varnarmanninum Anton Ferdinand frá Sunderland áður en félagaskiptaglugginn lokaði fyrr í kvöld.

Þessi 26 ára gamli leikmaður skrifaði undir þriggja ára samning við QPR.
Ferdinand, sem er bróðir Rio Ferdinand, hefur reynslu úr ensku úrvalsdeildinni með Sunderland og West Ham en hann er einnig frændi Les Ferdinand sem lék með QPR á sínum tíma.

,,Ég hef heyrt góða hluti um stjórann (Neil Warnock) og eftir að hafa tala við hann þá er klárt að hann vill það besta fyrir mig og vill að ég standi mig vel,\" sagði Ferdinand.

,,Um leið og ég var búinn að funda með honum vissi ég að QPR væri félagið fyrir mig.\"

Heimild: Heimasíða QPR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.