Fotbolti.net
31.08.11 - 23:03
Elvar Geir Magnússon

Orlando Sa til Fulham (Staðfest)

Orlando Sa til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Orlando Sa hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fulham. Þessi 23 ára portúgalski leikmaður kemur á frjálsri sölu frá Porto þar sem tækifæri hans hafa verið af skornum skammti.
Hann lék áður með Braga en hann gekk til liðs við félagið 15 ára gamall. Hann fór svo til Porto 2009.

Sa sagði við heimasíðu Fulham að hann sé spenntur fyrir þessum félagaskiptum og vilji láta til sín taka í ensku úrvalsdeildinni.

Hann á 7 leiki að baki fyrir U21-landslið Portúgal og einn A-landsleik fyrir þjóðina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.