Fotbolti.net
31.08.11 - 23:11
Magnús Már Einarsson

Yakubu til Blackburn (Staðfest)

Yakubu til Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn Rovers náði að kaupa framherjann Yakubu frá Everton áður en félagaskiptaglugginn lokaði fyrr í kvöld.
Yakubu fékk leyfi til að yfirgefa herbúðir Everton eftir að félagið náði að krækja í Denis Stracqualursi á láni frá Tigres.

Þessi 28 ára gamli Nígeríumaður hefur leikið á Englandi frá því árið 2003.

Yaubu lék með Portsmouth og Middlesbrough áður en hann gekk í raðir Everton árið 2007.

Á síðasta tímabili var Yakubu síðan í láni hjá Leicester þar sem hann skoraði ellefu mörk í Championship deildinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.