31.08.11 - 23:59
Hafliði Breiðfjörð
Peter Crouch til Stoke City (Staðfest)

Peter Crouch hafði ástæðu til að kíkja í klippingu við nýja búninginn frá Stoke City.

Mynd: Getty Images

Peter Crouch hafði ástæðu til að kíkja í klippingu við nýja búninginn frá Stoke City.

Mynd: Getty Images
Stoke City náði að ganga frá kaupum á Peter Crouch framherja Tottenham áður en félagaskiptaglugginn lokaði en hann er orðinn dýrasti leikmaður í sögu félagsins, kostaði 10 milljónir punda.
Þetta var staðfest á vef félagsins nú rétt fyrir miðnætti en Crouch skrifaði undir fjögurra ára samning við Stoke og er þriðji leikmaðurinn sem kemur til þeirra í sumar frá Tottenham, hinir voru Wilson Palacios og Jonathan Woodgate.
Hann er annar framherjinn sem Stoke fékk rétt áður en glugginn lokaði því áður var búið að staðfesta komu Cameron Jerome frá Birmingham City.
Kaupverðið gæti reyndar orðið hærra, því Stoke segir á vef sínum að það gæti farið í 12 milljónir punda ef ákveðnum markmiðum verður náð. Áður var Kenwyne Jones dýrastur, kostaði 8 milljónir punda.

Heimild: Vefur Stoke