Fotbolti.net
31.10.09 - 19:35
Hafliði Breiðfjörð

Fjóla Dröfn Friðriksdóttir í Fylki (Staðfest)

Fjóla í búningi Fylkis eftir undirskriftina ásamt Lidija Stojkanovic aðstoðarþjáfara og Birni Kristni Björnssyni þjálfara.

Fjóla í búningi Fylkis eftir undirskriftina ásamt Lidija Stojkanovic aðstoðarþjáfara og Birni Kristni Björnssyni þjálfara.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Fylkir fékk góðan liðsstyrk í kvöld þegar Fjóla Dröfn Friðriksdóttir skrifaði undir eins árs samning við félagið en hún kemur þangað frá KR.
Fjóla sem er 27 ára gömul hefur leikið með KR undanfarnar fimm leiktíðir en söðlar nú um og ætlar að leika í Árbænum næsta sumar.

Hún hefur átt fast sæti í byrjunarliði KR undanfarin ár, jafnt í sumar þegar liðið var í baráttu í neðri hluta deildarinnar sem og í gríðarlega sterku liði árin þar á undan.

Hún hefur skorað 45 mörk í 88 leikjum með KR á þessum fimm árum. Hún lék alla 18 deildarleiki liðsins í sumar og skoraði í þeim fjögur mörk.

Fjóla er fyrsti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Fylki í sumar en liðið styrkist þó einnig með því að Sara Sigurlásdóttir og Lovísa Sólveig Erlingsdóttir sem léku ekkert með í sumar snúa aftur eftir meiðsli.

Liðið hefur misst þær Dönku Podovac í Þór/KA og Elsu Petru Björnsdóttur í FH.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.