31.12.08 - 16:09
Magnús Már Einarsson
Gavin Hoyte til Watford (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Watford hefur fengið Gavin Hoyte varnarmann Arsenal á láni út tímabilið.
Hinn átján ára gamli Hoyte getur leikið bæði sem bakvörður og miðvörður en hann hefur leikið alla leiki Arsenal í enska deildabikarnum á þessu tímabili.
Hoyte, sem er yngri bróðir Justin Hoyte, hefur einnig fengið tækifæri í úrvalsdeildinni á tímabilinu.
Gengið hefur verið frá lánssamningnum og Hoyte ætti því að geta leikið með Watford gegn Scunthorpe United í enska bikarnum á laugardaginn.

Heimild: BBC