31.12.11 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Fjalar Þorgeirsson í KR (Staðfest)

Mynd: Vefur KR

Mynd: Vefur KR
Markvörðurinn Fjalar Þorgeirsson hefur gengið til liðs við Íslands og bikarmeistara KR.
Fjalar hefur æft með KR að undanförnu og spilað tvo æfingaleiki en hann hefur nú skrifað undir tveggja ára samning við félagið.

KR-ingar hafa verið í leit að markverði síðan Atli Jónasson gekk í raðir KV á dögunum en Fjalar mun nú berjast við Hannes Þór Halldórsson um markvarðarstöðuna í Vesturbænum.
Fjalar, sem er 34 ára, yfirgaf herbúðir Fylkis í haust en hann hefur einnig leikið með Þrótti og Fram hér á landi.
Hann hefur leikið 237 leiki með þessum félögum í deild og bikar. Fjalar hefur einnig leikið fimm A-landsleiki, tvo U21-landsleiki og átta U19-landsleiki.

Heimild: Heimasíða KR