31.12.11 - 17:36
Magnús Már Einarsson
Emmanuel Frimpong til Wolves á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Emmanuel Frimpong, leikmaður Arsenal, hefur gengið til liðs við Wolves á láni út tímabilið.
Frimpong hefur lekið fjórtán leiki með Arsenal á tímabilinu en hann mun núna reyna að hjálpa Wolves í botnbaráttunni.
,,Þetta er klárt og ég er ánægður því hann er stórkostlegur ungur leikmaður,\" sagði Mick McCarthy stjóri Wolves.
Frimpong mun meðal annars berjast við Eggert Gunnþór Jónsson um sæti á miðjunni hjá Wolves.
Bæði Eggert og Frimpong verða löglegir með Úlfunum þegar félagaskiptaglugginn opnar á miðnætti og þeir gætu leikið sinn fyrsta leik gegn Chelsea á mánudag.

Heimild: Heimasíða Arsenal