Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 14. júlí 2014 11:00
Magnús Már Einarsson
Löw: Sagði Götze að sýna að hann sé betri en Messi
Mario Götze.
Mario Götze.
Mynd: Getty Images
Joachim Löw, landsliðsþjálfari Þjóðverja, segist hafa sagt Mario Götze að sýna að hann sé betri en Lionel Messi áður en hann skoraði sigurmarkið í úrslitaleik HM í gær.

Götze kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmark Þjóðverja í framlengingu gegn Messi og félögum frá Argentínu.

,,Sýndu þeim að þú ert betri (en Messi) og skoraðu sigurmarkið," sagði Löw við Götze í hálfleik í framlengingunni.

,,Götze er kraftaverka drengur. Hann er undur sem getur spilað í mörgum stöðum. Hann getur gert gæfumuninn og hann gerði það þarna," sagði Löw eftir leik.
Taktu þátt í HM-umræðunni á Facebook! Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook þar sem oft skapast líflegar umræður um boltann.
Athugasemdir
banner
banner
banner