Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   fim 21. ágúst 2014 00:38
Brynjar Ingi Erluson
Hernanes: Verðum að nálgast seinni leikinn svona
Mynd: Getty Images
Hernanes, leikmaður Internazionale á Ítalíu, var ánægður með 3-0 sigur liðsins á Stjörnunni í undankeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.

Mauro Icardi, Dodo og Danilo D'Amrosio skoruðu mörk Inter á troðfullum Laugardalsvelli í kvöld en ljóst er að einvígið er svo gott sem búið fyrir síðari leikinn sem fer fram á Giuseppe Meazza leikvanginum eða San Siro eins og hann er yfirleitt kallaður.

,,Við nálguðumst leikinn á réttan hátt. Það var erfitt að koma þessu í spil til að byrja með en þegar fyrsta markið kom þá urðu þeir að sækja og þá varð þetta töluvert einfaldara en við nálguðumst leikinn með virðingu fyrir andstæðingnum," sagði Hernanes við Fótbolta.net.

,,Við vissum að við gætum tapað þessu svo þetta var rétt nálgun. Við vissum hvernig Stjarnan myndi spila og liggja aftur með fleiri leikmenn í vörninni og því urðum við að vera þolinmóðir til að finna réttu leiðina til að komast yfir."

,,Núna getum við spilað á okkar velli og með þetta forskot en það mikilvægasta er að nálgast næsta leik með sama hætti. Það mikilvægasta er að spila góðan leik,"
sagði hann að lokum.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner