Jonas Gutierrez spilaði sinn fyrsta leik fyrir Newcastle United síðan hann greindist með krabbamein þegar liðið tapaði fyrir Manchester United fyrr í kvöld.
Gutierrez spilaði síðast fyrir Newcastle fyrir einu og hálfu ári síðan og fékk magnaðar móttökur þegar honum var skipt inná gegn Man Utd.
Gutierrez spilaði síðast fyrir Newcastle fyrir einu og hálfu ári síðan og fékk magnaðar móttökur þegar honum var skipt inná gegn Man Utd.
Lætin frá St. James' Park eru sögð hafa heyrst margar húsaraðir en hér fyrir neðan má sjá myndband tekið úr síma í stúkunni.
Gutierrez kom inná fyrir Ryan Taylor á 65. mínútu og gat ekki komið í veg fyrir sigurmark Ashley Young á 89. mínútu.
Athugasemdir