Við greindum frá því fyrr í kvöld að Stjarnan hefði nýtt sér forkaupsrétt á sóknarmanninum Hólmberti Aroni Friðjónssyni. Stjörnumenn hafa nú staðfest það að leikmaðurinn sé búinn að skrifa undir þriggja ára samning í Garðabænum.
Hólmbert var lánaður til Stjörnunnar í sumar og í lánssamningnum var ákvæði um að Stjarnan hefði forkaupsrétt á leikmanninum. Stjarnan nýtti sér það á síðustu stundu og nú er það ljóst að hann verður áfram í bláu.

„Stjarnan hefur samið við sóknarmanninn knáa Hólmbert Aron Friðjónsson til þriggja ára. Hólmbert er gríðarlega metnaðarfullur leikmaður sem ætlar sér langt með Stjörnunni næstu árin," segir á Twitter-síðu Stjörnunnar.
Hólmbert lék 10 leiki með KR-ingum í Pepsi-deildinni á nýafstaðinni leiktíð, en náði ekki að skora mark fyrir Vesturbæjarliðið. Hann skipti svo yfir í Stjörnuna og skoraði tvö mörk í níu leikjum sem komu bæði í leiknum gegn Íslandsmeisturum FH í Kaplakrika.
Stjarnan hefur gengið frá samningum við @holmbert um að leika með félaginu næstu árin. #Hjartaðmitterblátt #InnMedBoltann pic.twitter.com/R6RMDgkY1o
— Stjarnan FC (@FCStjarnan) October 21, 2016
Athugasemdir