Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 19. febrúar 2017 16:07
Kristófer Kristjánsson
England: Harry Kane þrenna sökkti Fulham
Mynd: Getty Images
Fulham 0 - 3 Tottenham
0-1 Harry Kane ('16 )
0-2 Harry Kane ('51 )
0-3 Harry Kane ('73 )

Tottenham lenti ekki í vandræðum með Fulham í fimmtu umferð enska bikarsins í dag.

B-deildarlið Fulham var í veseni allan leikinn en Harry Kane var eldheitur; það tók hann aðeins korter að brjóta ísinn eftir góða fyrirgjöf frá Christian Eriksen.

Snemma í síðari hálfleik afgreiddi Kane aðra fyrirgjöf frá Eriksen og leikurinn orðinn þægilegur fyrir Pochettino og félaga.

Harry Kane rak svo smiðshöggið á þrennu sína á 73. mínútu eftir stungusendingu frá Dele Alli og auðveldur sigur Tottenham staðreynd sem er nú komið í 8 liða úrslit.

Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Fulham í dag.
Athugasemdir
banner
banner