Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 26. febrúar 2017 07:00
Magnús Már Einarsson
Æfingaleikir: Þróttur V. vann tvo leiki - KFG sigraði Álftanes
Andri Björn skoraði þrennu í gær.
Andri Björn skoraði þrennu í gær.
Mynd: Þróttur Vogum
Þróttur Vogum burstaði ÍH 6-1 í æfingaleik á Valsvelli í gær. Hér að neðan má sjá myndband af mörkunum í leiknum.

Um síðustu helgi sigruðu Þróttarar lið Sindra úr 2. deild í æfingaleik en lokatölur þar urðu 3-2.

KFG sigraði Álftanes 2-1 í æfingaleik sem fram fór í gær.

Þá gerðu Ísbjörninn og Kóngarnir 2-2 jafntefli í æfingaleik sem fram fór í gær.

Þróttur Vogum 6 - 1 ÍH
Mörk Þróttar: Andri Björn Sigurðsson 3, Kristinn Aron Hjartarson 2, sjálfsmark.

Þróttur Vogum 3 - 2 Sindri

KFG 2 - 1 Álftanes
Mörk KFG: Sigurður Bjarni Jónsson og Daði Kristjánsson.

Ísbjörninn 2 - 2 Kóngarnir
1-0 Aron Þórðarson
2-0 Svavar Elliði Svavarsson
2-1 Anton Freyr Írisarson
2-2 Björn Ingi Árnason



Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner