Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   lau 22. júlí 2017 19:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dagný: Hefði gefið henni rautt ef ég hefði verið dómari
Dagný í baráttu í leiknum.
Dagný í baráttu í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við hleypum þeim inn í leikinn eftir að við náðum fyrsta markinu inn," sagði Dagný Brynjarsdóttir eftir leik Ísland gegn Sviss á Evrópumótinu í Hollandi í dag.

Fanndís Friðriksdóttir kom Íslandi yfir, en Sviss svaraði með tveimur mörkum og vann að lokum 2-1.

„Þetta var í okkar höndum. Við hefðum viljað halda þeim í núllinu, en svona var þetta í dag."

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  2 Sviss

„Það hefði verið sterkt fyrir okkur að halda forystu fram í hálfleik. Svo fáum við annað mark á okkur fljótlega í seinni hálfleik og gerum þetta svolítið erfitt fyrir okkur."

„Þetta var skrýtið á köflum. Ég þarf að horfa á þetta aftur og sjá hvað vantaði hjá okkur."

Dagný lenti í ansi grófri tæklingu í byrjun leiks. Lara Dickenmann, fyrirliði Sviss, fékk gult spjald, en margir voru á því að þetta hefði verið rautt. Hvað fannst Dagný um atvikið?

„Ef ég hefði verið dómari, þá hefði ég gefið henni rautt. Svo tekur hún Fríðu aftur í endann. Vonandi fer dómaratríóið yfir þetta til að laga sinn leik," sagði Dagný.

Sjá einnig:
Átti fyrirliði Sviss að fá rautt í byrjun leiks?

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.




Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner
banner