Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 28. júlí 2017 18:30
Dagur Lárusson
Alexis Sanchez veikur rétt fyrir endurkomu
Alexis Sanchez
Alexis Sanchez
Mynd: Getty Images
Alexis Sanchez, leikmaður Arsenal, hefur verið mikið í umræðunni í sumar en hann hefur verið orðaður við för frá félaginu.

Fyrr í vikunni staðfesti Arsene Wenger að leikmaðurinn muni snúa aftur til æfinga næstkomandi sunnudag og engin vandræði séu til staðar.

Í dag hinsvegar setti Alexis Sanchez athyglisverða mynd á instagram reikning sinn þar sem hann skrifar undir að hann sé orðinn veikur. Fréttamiðlar á Bretlandi telja þetta vera grunasamlegt þar sem að Sanchez tilkynnti það óbeint fyrir stuttu að hann vilji fara frá félaginu.

Það er þá spurning hvort að Alexis sé að gera sér upp veikindi til þess að ýta undir það að hann verði seldur en hvort hann sé í raun og veru veikur, en hver og einn verður að dæma fyrir sig.


Athugasemdir
banner
banner
banner