Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 13. ágúst 2017 11:39
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Byrjunarlið Newcastle og Tottenham: Kyle Walker-Peters byrjar hjá Tottenham
Javier Manquillo byrjar hjá Newcastle
Javier Manquillo byrjar hjá Newcastle
Mynd: Getty Images
Fyrsti leikur dagsins af tveimur í ensku úrvalsdeildinni í dag er viðureign Newcastle og Tottenham á St. James Park í Newcastle. Leikurinn hefst klukkan 12:30 og er sýndur í beinni á Stöð 2 Sport.

Newcastle er komið aftur í deild þeirra bestu eftir eins árs hlé og fá lið Tottenham í heimsókn sem lenti í öðru sæti deildarinnar í fyrra.

Hjá Newcastle byjar Dwight Gayle frammi og þá spilar Javier Manquillo sinn fyrsta leik fyrir Newcastle eftir að hafa komið frá erkifjendunum í Sunderland.

Hinn ungi Kyle Walker-Peters byrjar í hægri bakverðinum hjá Tottenham og þá byrjar Moussa Sissoko einnig hjá gestunum.


Byrjunarlið Newcastle:Elliot, Manquillo, Clark, Lejeune, Dummett, Shelvey, Hayden, Atsu, Ritchie, Perez, Gayle.

Byrjunarlið Tottenham: Lloris, Walker-Peters, Alderweireld, Vertonghen, Davies, Dier, Dembele, Sissoko, Eriksen, Alli, Kane.
Athugasemdir
banner
banner