Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 21. ágúst 2017 17:00
Magnús Már Einarsson
Podolski íhugar lögsókn eftir myndbirtingu
Podolski fagnar marki með Arsenal.
Podolski fagnar marki með Arsenal.
Mynd: Getty Images
Þýski framherjinn Lukas Podolski er að íhuga að lögsækja vefsíðuna Breitbart eftir myndbirtingu um helgina.

Í frétt Breitbart um ólöglega innflytjendur var birt mynd af Podolski á á sæþotu.

Hinn 32 ára gamli Podolski hefur beðið lögfræðinga sína að kíkja á málið.

Breitbart hefur beðist afsökunar á myndbirtingunni og fjarlægt fréttina.

Podolski er í dag á mála hjá Vissel Kobe í Japan en hann lék á sínum tíma með Bayern Munchen og Arsenal.

Hér að neðan má sjá fréttina.



Athugasemdir
banner
banner