Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mán 21. ágúst 2017 17:19
Magnús Már Einarsson
Kalinic á leið til AC Milan
Mynd: Getty Images
Nikola Kalinic, framherji Fiorentina, er mættur í læknisskoðun hjá AC Milan.

Kalinic er á leið til AC Milan á láni en félagið greiðir fimm milljónir evra fyrir samninginn.

AC Milan getur síðan keypt Kalinic á 20 milljónir evra næsta sumar.

Hinn 29 ára gamli Kalinic var í janúar sterklega orðaður við félög í Kína en ekkert varð af þeim félagaskiptum.

Kalinic er frá Króatíu en hann lék með Blackburn á árunum 2009 til 2011.
Athugasemdir
banner
banner
banner