Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. september 2017 16:13
Magnús Már Einarsson
Karius í markinu hjá Liverpool á morgun
Loris Karius.
Loris Karius.
Mynd: Getty Images
Loris Karius verður í marki Liverpool gegn Spartak Moskvu í Meistaradeildinni annað kvöld.

Karius var einnig í markinu í 2-2 jafnteflinu gegn Sevilla í fyrsta leik í Meistaradeildinni. Simon Mignolet hefur spilað flesta leiki í ensku úrvalsdeildinni en Karius verður í byrjunarliðinu á morgun.

„Hann spilar á morgun og við sjáum til. Simon er númer eitt og þannig er staðan," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Saido Mane er klár í slaginn eftir að hafa verið í banni í síðustu þremur leikjum á Englandi.

Joe Gomez er hins vegar í banni á morgun eftir að hafa fengið rauða spjaldið gegn Sevilla.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner