„Það er rosalega mikilvægt að hlæja og hafa gaman á æfingum í bland við alvarleikann," sagði Sandra María Jessen eftir landsliðsæfingu í gær.
Það er klisjulegt að tala um að létt hafi verið yfir íslenska hópnum en það fór ekki á milli mála að íslenska liðið skemmti sér vel á æfingunni í gær og keppnisskapið var ekki langt undan.
Það er klisjulegt að tala um að létt hafi verið yfir íslenska hópnum en það fór ekki á milli mála að íslenska liðið skemmti sér vel á æfingunni í gær og keppnisskapið var ekki langt undan.
Kvennalandsliðið mætir Slóveníu í bænum Lendava á morgun klukkan 15 að íslenskum tíma.
Sandra var í janúar lánuð frá Þór/KA í Tékklandsmeistara Slavia Prag og kann hún vel við sig hjá félaginu.
„Ég er rosalega ánægð og mér líður vel hérna. Prag er falleg borg og er aðeins stærri en Akureyri svo það tók mig smá tíma að venjast því. En mér gengur mjög vel," sagði Sandra. Hún segir mikinn metnað í kringum Slavia Prag.
„Það er mikið af sterkum leikmönnum og við náum vel saman. Ég komst strax inn í liðið um leið og ég kom þangað og það skiptir miklu máli. Ég fann fyrir gæðum og metnaði. Mér finnst ég hafa lært heilmikið þarna úti. Þetta var mikilvægt skref fyrir mig, að stíga út úr þægindarammanum og þurfa að sýna sig og sanna upp á nýtt. Ég held að það sé mikilvægt fyrir alla leikmenn."
Sjáðu viðtalið hér í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir