Túfa, þjálfari KA, var svekktur eftir markalaust jafntefli við Keflavík í Pepsi-deildinni í kvöld. Skap hans var annað en hjá Guðlaugi Baldurssyni, þjálfara Keflavíkur, sem var sáttur með úrslitin.
„Við ætluðum okkur sigur í dag og strákarnir gerðu allt til að vinna leikinn. Ég er mjög ánægður með þá. Við gerðum allt sem við gátum á þessum velli. Ég er vonsvikinn og sár að við skyldum ekki vinna leikinn," sagði Túfa í viðtali eftir leik.

Lestu um leikinn: KA 0 - 0 Keflavík
Akureyrarvöllur er ekki að koma vel undan vetri og það hindraði það að góður yrði spilaður í kvöld.
„Að sjálfsögðu myndi maður vilja hafa teppi og góðan völl til að geta notað alla okkar styrkleika, en við vissum að völlurinn væri svona. Við verðum að venja okkur á hann."
Hinn tvítugi Aron Elí Gíslason kom inn í mark KA í kvöld þar sem Christian Martinez fékk höfuðhögg í upphitun. Aron hélt hreinu og það gladdi Túfa.
„Hann kemur mjög vel inn í þetta. Það er mjög erfitt að fá að vita það fimm mínútum fyrir leik að þú sért að byrja. Hann kemur rosalega sterkur inn í þetta og á mikið hrós skilið."
Sjá einnig:
Byrjaði að æfa fótbolta í fyrra - Hélt hreinu í Pepsi í kvöld
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir