Sjötta umferð Pepsi-deildar karla hefst í dag og verða fimm leikir spilaðir þennan sunnudaginn. Það verður nóg að gera.
Fyrsti leikur dagsins, leikur Keflavíkur og ÍBV hefst klukkan 16:00, en markaðurinn í Draumaliðsdeild Eyjabita lokar klukkutíma fyrir leikinn eða á slaginu 15:00.
Fyrsti leikur dagsins, leikur Keflavíkur og ÍBV hefst klukkan 16:00, en markaðurinn í Draumaliðsdeild Eyjabita lokar klukkutíma fyrir leikinn eða á slaginu 15:00.
Það er um að gera að breyta liði þínu ef þú ert ekki nægilega sáttur með gengið hingað til, því stigahæsta liðið í 6. umferðinni fær fullt af harðfisk í verðlaun frá Eyjabita!
Eins og fyrr segir lokar markaðurinn klukkan 15:00. Gerðu breytingar ef þú telur þig þurfa gera það.
sunnudagur 27. maí
16:00 Keflavík-ÍBV (Nettóvöllurinn)
17:00 KR-KA (Alvogenvöllurinn)
17:00 Víkingur R.-Fjölnir (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Grindavík (Samsung völlurinn)
20:00 Valur-Breiðablik (Origo völlurinn)
mánudagur 28. maí
19:15 FH-Fylkir (Kaplakrikavöllur)
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Athugasemdir