Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   lau 09. júní 2018 21:30
Gunnar Logi Gylfason
Yfirlýsing Lyon vegna Fekir
Nabil Fekir
Nabil Fekir
Mynd: Getty Images
Oympique Lyon hefur gefið frá sér yfirlýsingu vegna Fekir og Liverpool en Liverpool átti að vera svo gott sem búið að tryggja sér þjónustu Frakkans.

Yfirlýsing Lyon er svo hljóðandi: „Viðræður við Liverpool og Nabil Fekir vegna kaupa á fyrirliða OL hafa mistekist og Olympique Lyonnais ákvað að enda viðræður í kvöld klukkan 20:00."

„Þó Liverpool hafi verið í forgangi vegna hugsanlegra skipta Nabil er Olympique Lyonnais ánægt með að hafa fyrirliðann okkar, sem er lykilmaður fyrir næsta tímabil þar sem félagið verður með í Meistaradeildinni."


Nabil Fekir er uppalinn hjá Lyon en hann skoraði 21 mark og lagði upp níu til viðbótar í 39 leikjum á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner