Fréttamaðurinn Fabrizio Romano er svo gott sem búinn að staðfesta félagsskipti íranska framherjans Mehdi Taremi til verðandi Ítalíumeistara Inter á frjálsri sölu.
Inter heldur þannig áfram frábærum árangri sínum á leikmannamarkaðinum þar sem stórveldinu tekst sífellt að krækja í öfluga leikmenn sem eru að renna út á samningi.
Taremi er búinn að gera tveggja ára samning við Inter með möguleika á auka ári, en hann verður 32 ára í sumar eftir að hafa spilað með Porto síðustu fjögur ár.
Taremi hefur komið að 142 mörkum í 177 leikjum með Porto en hefur átt erfitt uppdráttar á núverandi leiktíð, þar sem hann hefur aðeins tekið þátt í 13 mörkum í 30 leikjum.
Inter er einnig að krækja í Piotr Zielinski frá Napoli í sumar, eftir að hafa krækt í Marcus Thuram, Juan Cuadrado, Andre Onana og Henrikh Mkhitaryan á frjálsri sölu síðustu tvær leiktíðir.
?????? Mehdi Taremi’s contract at Inter will be valid until June 2026, two years.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) April 26, 2024
It will also include an option to extend until June 2027.
It’s all done and completed with FC Porto also informed.
Here we go, confirmed. ???????? pic.twitter.com/5dTPQeyblh
Athugasemdir