Þróttur R. Fékk ríkjandi Íslandsmeistara Vals í heimsókn til sín fyrr í dag. Leikar enduðu 1-2 gestunum í vil. Þróttur R. er með 1 stig eftir fyrstu tvær umferðir Bestu-deildar kvenna.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 2 Valur
„Mér fannst við vera á afturfótunum í byrjun leiks, passívar spiluðum ekki nægilega mikið fram á við og urðum svolítið flatar í varnarleik. Þegar við slepptum aðeins beislinu þá fannst mér þetta komast ágætlega af stað."
„Mér fannst Valur stýra seinni hálfleiknum og við þurftum betri ákvarðanir á síðasta þriðjung og spila meira fram á við."
Þróttur R. spilaði með háa línu og pressuðu Val
„Við nutum góðs af því þegar við unnum boltann. Ef þú telur það þá unnum við boltann oftar við það að gera þetta heldur en hitt. Afleiðingin að fá mörk á sig er dýrkeyptari. Ég vil frekar spila svona og taka ákveðnar áhættur."
Álfhildur Rósa fyrirliði Þróttar meiddist í síðasta leik gegn Fylki en var á bekknum og kom ekkert við sögu í dag. Ólafur sagði að hún yrði tilbúin í næsta leik gegn Þór/KA.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir