Fótbolti.net og listamaðurinn Tolli taka höndum saman nú á meðan á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi stendur og bjóða upp þrjú málverk eftir Tolla hér á vefnum. Verkin eru merkt HM 2018 og aðeins verða þessi þrjú málverk máluð í þessum stíl.
Þetta er í þriðja sinn sem Fótbolti.net stendur fyrir slíkum uppboðum og öll upphæðin mun renna til Parkinson samtakanna að þessu sinni.
Fyrsta uppboðinu er lokið. Önnur myndin sem er boðin upp er í tengslum við annan leik Íslands á HM gegn Nígeríu á föstudaginn. Hún er í stærðinni 60x60 cm.
Uppboðið er hafið hér á vefnum. Sendið upplýsingar um upphæð og nafn bjóðanda á netfangið [email protected].
Við uppfærum svo fréttina jafnóðum með hæsta boði en nöfn bjóðenda birtast ekki á vefnum. Lokadagur tilboða í þetta annað verk er mánudaginn 25. júní klukkan 12:00 .
Hæsta boð: 300.000,-
Fótbolti.net er þakkláttur fyrir velvild Tolla með þessu samstarfi og mikil ánægja að geta látið gott af okkur leiða.
Athugasemdir