Zlatan Ibrahimovic, framherji Paris Saint-Germain í Frakklandi, fór illa með blaðamann eftir 1-0 sigur liðsins á Rennes í frönsku deildinni á föstudag en hann brást þá illa við spurningu sem hann lagði fram.
Blaðamenn þurfa oft að passa sig hvernig þeir matreiða spurningarnar fyrir Zlatan sem tekur oft upp á því að rugla í þeim.
Maður veit í raun aldrei hvar maður hefur þennan sænska framherja en blaðamaður á leiknum á föstudag fékk heldur að finna fyrir því.
Hann var spurður út í samband hans við úrúgvæska framherjann, Edinson Cavani, og þá byrjaði bíóið. Hægt er að sjá myndband af því hér fyrir neðan.
Athugasemdir