Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 01. mars 2015 06:00
Arnar Geir Halldórsson
Felipe til Inter Milan (Staðfest)
Felipe laus úr bullinu hjá Parma og kominn til Inter
Felipe laus úr bullinu hjá Parma og kominn til Inter
Mynd: Getty Images
Brasilíski varnarmaðurinn Felipe er genginn í raðir Inter Milan en hann kemur á frjálsri sölu frá Parma.

Felipe var á mála hjá Parma en yfirgaf félagið á dögunum. Þrátt fyrir að félagsskiptaglugginn sé lokaður var honum frjálst að yfirgefa félagið enda hafa leikmenn liðsins ekki fengið greidd laun svo mánuðum skiptir.

Felipe á ríflega 200 leiki að baki í Serie A en hann lék lengst af með Udinese þar sem hann var frá 2002-2010 en hefur verið á flakki undanfarin ár og meðal annars leikið fyrir Fiorentina.

Hann hefur fengið leikheimild með Inter og gæti leikið gegn sínum gömlu félögum í Fiorentina í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner