Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 01. apríl 2015 19:08
Ívan Guðjón Baldursson
Viðtalið sem stuðningsmenn Liverpool eru brjálaðir yfir
Mynd: Getty Images
Skiptar skoðanir eru milli stuðningsmanna Liverpool um Raheem Sterling, tvítugan sóknarmann liðsins.

Sterling er samningsbundinn Liverpool til 2017 en hefur lengi verið í viðræðum við félagið um nýjan og bættan samning.

Sterling er ekki búinn að skrifa undir samninginn og halda því margir fram að leikmaðurinn sækist eftir alltof háum launum.

Ungstirnið segir í viðtalinu að hann sé ekki á eftir peningum heldur vilji hann vinna titla.

Sam Wallace, yfirmaður hjá The Independent, segir viðtalið hafa verið tekið án leyfis frá Liverpool.


Athugasemdir
banner