Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 01. september 2014 22:07
Daníel Freyr Jónsson
Alvaro Negredo til Valencia (Staðfest)
Alvaro Negredo fer í sjöuna hjá Valencia.
Alvaro Negredo fer í sjöuna hjá Valencia.
Mynd: Getty Images
Spænski framherjinn Alvaro Negredo er genginn í raðir Valencia frá Manchester City.

Þetta var staðfest nú rétt í þessu, en Valencia var í miklu kapphlaupi við tímann að ná að ganga frá samningum þar sem félagaskiptaglugginn var lokað fyrir skömmu.

Um er að ræða árslangan lánssamning og mun Negredo klæðast treyju númer sjö hjá Valencia.

Einungis er ár síðan City keypti hinn 29 ára gamla Negredo frá Sevilla fyrir rúmlega 16 milljónir punda. Hann skoraði 9 mörk í 32 leikjum á síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner