Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 01. október 2014 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Þjálfari Athletic: Eigum engan séns ef við spilum svona
Ernesto Valverde brosti ekki svona mikið eftir leik gærkvöldsins.
Ernesto Valverde brosti ekki svona mikið eftir leik gærkvöldsins.
Mynd: Getty Images
Ernesto Valverde, þjálfari Athletic Bilbao, var hundfúll út í sína menn eftir óvænt tap gegn Íslendingabönunum í BATE Borisov í Meistaradeildinni í gær.

Hvít-Rússarnir unnu sterkan 2-1 sigur og segir Valverde að Athletic eigi enga möguleika í keppninni ef þeir spila svona illa.

,,Við eigum alls enga möguleika á því að fara áfram ef við spilum eins og í þessum leik. Við förum ekki upp úr riðlinum svona," sagði Valverde eftir leik.

,,Það var enginn ákafi í okkur og ég var ótrúlega svekktur. Við töpuðum hverju einasta návígi."
Athugasemdir
banner
banner