Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 02. desember 2015 05:55
Hafliði Breiðfjörð
Minningarleikur um Hlyn Þór Sigurðsson í dag
Breiðholtsliðin ÍR og Leiknir mætast í Egilshöll
Mynd: Samsett
Breiðholtsliðin ÍR og Leiknir mætast í kvöld miðvikudag í árlegum minningarleik um Hlyn Þór Sigurðsson í Egilshöllinni klukkan 18:30. Leikið verður að þessu sinni í Egilshöll þar sem vallaraðstæður og veðurfar hefur ekki verið upp á sitt besta.

Hlynur, var 18 ára gamall þegar hann varð bráðkvaddur þann 25. nóvember 2009 á æfingu hjá ÍR, en hann iðkaði bæði knattspyrnu hjá félaginu ásamt því að þjálfa yngri iðkendur og gegna ýmsum sjálfboða störfum innan félagsins.

Hann gerði ekki bara marga frábæra hluti í þágu félagsins heldur var hann einnig virkur í félagslífi og duglegur námsmaður.

Í sumar var haldið mót fyrir yngri flokka sem kallast Hlynsmót og er það orðið að árlegum viðburði. Mótið gekk frábærlega vel fyrir sig.

Frítt er inn á leikinn en fólki er frjálst að gefa framlag í minningarsjóð Hlyns.
Kt: 411209-0160
Banki: 0115-05-60550

Félögin hvetja sem flesta til þess að styrkja málefnið og um leið að sjá hörkuleik í Egilshöll í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner