Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 04. maí 2015 17:50
Fótbolti.net
Skýrslur úr leikjunum fjórum í Pepsi-deildinni í gær
Mynd: Fótbolti.net
Breyting er á umfjöllun Fótbolta.net um íslenska boltann í sumar með þeim hætti að í stað hefðbundinna umfjallana eftir leikinn kemur svokölluð "skýrsla" frá fréttaritara á vellinum.

Í skýrslunni má finna hnitmiðaða skýringu á úrslitum leiksins ásamt fleiri upplýsingum.

Dómari leiksins fær einkunn, valinn er maður leiksins og sá sem bankaði á dyrnar, greint frá því hverjir áttu vondan dag og fleira.

Kerfið var ekki alveg tilbúið í gær þegar fjórir fyrstu leikir Pepsi-deildarinnar fóru fram og birtust skýrslurnar þá ekki í farsímaútgáfunni. Því hefur nú verið kippt í lag en skýrslurnar úr leikjum gærdagsins má nálgast hér að neðan.

Fjölnir 1 - 0 ÍBV
ÍA 0 - 1 Stjarnan
Keflavík 1- 3 Víkingur
Valur 0 - 3 Leiknir
Athugasemdir
banner
banner