Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 04. ágúst 2015 15:23
Magnús Már Einarsson
Man City samþykkir tilboð Roma í Dzeko
Mynd: Getty Images
Manchester City hefur samþykkt tilboð frá Roma í framherjann Edin Dzeko.

Sky greinir frá þessu en tilboðið hljóðar upp á 14 milljónir punda.

Dzeko hefur verið orðaður við brottför frá Manchester City í sumar og hann virðist nú vera á leið til Ítalíu.

Dzeko er 29 ára gamall en hann kom til Manchester City frá Wolfsburg árið 2011.

Hann hefur á ferli sínum hjá City skorað 50 mörk í 130 deildarleikjum.
Athugasemdir
banner