David De Gea átti magnaðan leik er Manchester United lagði Arsenal að velli á Emirates leikvanginum um helgina.
De Gea varði hvert skotið fætur öðru og lokaði á heimamenn í hvert skipti sem þeir komust í dauðafæri.
De Gea varði hvert skotið fætur öðru og lokaði á heimamenn í hvert skipti sem þeir komust í dauðafæri.
Frammistaða De Gea var svo góð að Twitter var fyllt af bröndurum og orðaleikjum frá notendum um frammistöðu spænska markvarðarins.
Cedric Bakambu, sem hefur verið funheitur með Villarreal, tók þátt í gríninu með myndbirtingu. Hann birti mynd af mölbrotnum iPhone síma og ráðlagði eigandanum að hringja í De Gea til að bjarga honum, eins og hann bjargaði United um helgina.
Grínið frá Bakambu er hægt að sjá hér fyrir neðan og augljóst að það virkar talsvert betur á ensku heldur en íslensku.
You need to call De Gea to save this one. pic.twitter.com/psryuCLZal
— Cédric Bakambu (@Bakambu17) December 4, 2017
Athugasemdir