Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 05. maí 2015 11:30
Magnús Már Einarsson
Steve McClaren hafnar Newcastle
Vill ekki fara í fallbaráttuna.
Vill ekki fara í fallbaráttuna.
Mynd: Getty Images
Steve McClaren, stjóri Derby, hefur hafnað tilboði um að taka við Newcastle út tímabilið.

Newcastle er einungis tveimur stigum frá fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir í ensku úrvalsdeildinni.

McClaren var boðið að taka við skútunni út tímabiið en hann hafnaði því tilboði.

McClaren hefur einnig sagt forráðamönnum Derby að hann muni ekki taka við Newcastle í sumar.

Carver mun klára tímabilið með Newcastle eftir fundarhöld síðustu daga en liðið hefur einungis unnið tvo af sextán leikjum síðan hann tók við í janúar.
Athugasemdir
banner
banner