Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 05. september 2015 11:08
Magnús Már Einarsson
Aron Einar: Hef aldrei verið betri
Allir klárir í slaginn á morgun
Icelandair
Aldrei verið betri.
Aldrei verið betri.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Allir leikmenn í íslenska hópnum eru í góðu standi fyrir leikinn gegn Kasakstan á morgun.

Heimir Hallgrímsson, annar af landsliðsþjálfurum Íslands, sagði í léttu bragði á fréttmannafundi í dag að einu áhyggjur hans væru af Aroni Einari Gunnarssyni sem fór út af með krampa gegn Hollandi.

„Ég hef aldrei verið betri," svaraði Aron að bragði.

Leikurinn við Kasakstan hefst klukkan 18:45 á Laugardalsvelli annað kvöld.

Eitt stig í leiknum annað kvöld tryggir Íslandi sæti á EM í Frakklandi næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner