Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
   mið 06. maí 2015 17:00
Magnús Már Einarsson
Sex ára valinn leikmaður tímabilsins
Mynd: Twitter
Hinn sex ára gamli Aaron Woodall hefur verið valinn leikmaður tímabilsins hjá St Mirren í skosku úrvalsdeildinni.

Aaron hefur verið að berjast við krabbamein en hann er þessa dagana í lyfjameðferð. Aaron hafði áður farið í aðgerð þar sem heilaæxli var fjarlægt.

Aaron æfir með yngri flokkum St Mirren hann fékk að vera lukkupolli í leik hjá aðalliðinu gegn Motherwell fyrr á tímabilinu.

Tæplega 500 stuðningsmenn St Mirren tóku þátt í kosningu á leikmanni ársins og þar endaði Aaron efstur á undan leikmönnum úr aðalliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner