Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 06. maí 2015 13:30
Magnús Már Einarsson
Dybala til Chelsea, Juventus eða PSG?
Mynd: Getty Images
Paulo Dybala, framherji Palermo, mun ákveða framtíð sína innan tveggja vikna.

Dybala er 21 árs gamall Argentínumaður en Chelsea, Juventus og PSG keppast um þjónustu hans.

„Ég held að eftir 10 eða í mesta lagi 15 daga munum við vita framtíð hans. Við munum hitta leikmanninn og umboðsmann hans til að klára samninga," sagði Maurizio Zamparini forseti Palermo.

Dybala talar ekki ensku né frönsku og talið er að hann vilji helst spila áfram á Ítalíu.
Athugasemdir
banner
banner