Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 06. maí 2015 15:09
Elvar Geir Magnússon
Inter fylgist með stöðu mála hjá Martin Skrtel
Skrtel fagnar með liðsfélögunum.
Skrtel fagnar með liðsfélögunum.
Mynd: Getty Images
Roberto Mancini, stjóri Inter, vill fá Martin Skrtel í vörnina hjá sér en leikmaðurinn hefur enn ekki samþykkt nýtt samningstilboð frá Liverpool.

Slóvakinn er að fara inn í síðustu 12 mánuði núgildandi samnings.

Skrtel er 30 ára og er einn af þeim leikmönnum í hópi Liverpool sem lengst hefur þjónað félaginu.

Liverpool náði að sannfæra Jordan Henderson um að skrifa undir nýjan samning en nú er forgangsmál að tryggja sér áframhaldandi þjónustu Skrtel.

Wolfsburg og Napoli hafa einnig sýnt varnarmanninum áhuga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner