Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 06. maí 2015 15:31
Magnús Már Einarsson
William Dominguez í Víking Ólafsvík (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Víkingur Ólafsvík hefur samið við William Domínguez Da Silva en hann er Brasilíumaður sem er einnig með spænskt vegabréf.

William er 26 ára gamall hefur lengst af á ferli sínum spilað með félögum í spænsku neðri deildunum.

Hann getur spilað bæð sem framherji sem og framarlega á miðjunni.

Ólafsvíkingar hefja leik í 1. deildinni á laugardag gegn Haukum og William gæti leikið sinn fyrsta leik þar ef leikheimild berst í tæka tíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner