Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 09. október 2015 16:30
Elvar Geir Magnússon
Guðjón Pétur búinn að yfirgefa Breiðablik
Guðjón Pétur Lýðsson.
Guðjón Pétur Lýðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Pétur Lýðsson er hættur sem leikmaður Breiðabliks en þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsfélaginu. Þar segir að leikmaðurinn gæti verið á leið erlendis.

Guðjón var ekki sáttur við stöðu sína hjá Blikum og sagði á dögunum að hann væri líklega á förum. Hann hefur verið hjá Blikum síðan 2013 en þar á undan lék hann fyrir Val, Hauka og Stjörnuna.,

Yfirlýsing Breiðabliks:
Knattspyrnudeild Breiðabliks og Guðjón Pétur Lýðsson hafa ákveðið að nú skilji leiðir og framlengja ekki núverandi leikmannasamning. Sú ákvörðun er tekin sameiginlega og í fullri sátt beggja aðila.

Knattspyrnudeild Breiðabliks þakkar Guðjóni Pétri fyrir hans góða framlag til félagsins, jafnt innan vallar sem utan, undanfarin 3 ár og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi sem að öllum líkindum verður erlendis ef allt gengur upp.

Guðjón Pétur vill jafnframt þakka knattspyrnudeild Breiðabliks, starfsfólki, sjálfboðaliðum, stuðningsmönnum, þjálfurum og síðast en ekki síst leikmönnum fyrir frábæra tíma hjá félaginu.

F.h. knattspyrnudeildar Breiðabliks
Eysteinn Pétur Lárusson frkv.stjóri

Sjá einnig:
Arnar um Guðjón Pétur: Enginn stærri en liðið
Athugasemdir
banner
banner